Var að byrja að elda kvöldmatinn í kvöld og þurfti nokkrum sinnum að fara í búrið til að sækja ýmislegt til þess. Í eitt skiptið rakst ég utan í einn fjögurra ára sem var að þvælast þar. Heyrist þá í gæjanum: "Mamma ertu með svona stóran maga? Ertu með barn í maganum?"
Ef þetta rekur mann ekki í ræktina þegar ég kem heim þá veit ég ekki hvað mun koma mér þangað :-)
1 ummæli:
hahhahaahaaa góður Rúnar Atli
en þú lítur alltaf vel út Gulla min.Frábær eins og þú ert
Skrifa ummæli