Ég hef verið á fullu að sauma fallegan stóran jóladúk og er búin með aðalmunstrið en á eftir að falda hann og sauma munstur í hvert horn. En ég er strax farin að velta fyrir mér næsta verkefni og er eiginlega dottin niður á þennan dúk.
Þetta er meiriháttar fallegur heklaður dúkur og hef ég m.a.s byrjað á honum nokkrum sinnum í gegnum tíðina, en alltaf gefist upp. En nú ætla ég sem sagt að gera aðra tilraun.
1 ummæli:
thessi er flottur, ég var ad klára rúmteppi og er byrjud á ödru:-)
Skrifa ummæli