Í hverri viku er stafsetningapróf hjá Rúnari og bekknum
hans. Þau fá 12 orð sem þau eiga að læra utan að og taka svo próf. Oftast eru
þetta nú bara venjuleg orð sem við notum dags daglega. Um daginn kom hann heim með
sinn lista eins og venjulega og við erum að fara yfir þetta saman. Rekst ég þá
ekki á orðið “geodesic” á listanum hans. Ég hafði bara aldrei séð þetta orð,
vissi ekki hvað það þýddi né hvernig átti að bera það fram. Jú jú hann kannaðist við orðið þegar ég
spurði hann og kenndi mér réttan framburð á því J Þau hafa eitthvað
notað þetta orð í arkitektúraþemanu þeirra. En við Villi þurftum að fletta
þessu upp í orðabók.
Svo eru þau greinilega að læra um klassísku tónskáldin í
tónmennt. Því hann talar stundum um Beethoven og Bach og hann er greinilega að fíla
Bach J
Í lok næstu viku, þann 9. des., kemst hann í langþráð
jólafrí. Það verður frí í heilan mánuð. Hann tilkynnti mér um daginn að hann
ætli sko að sofa út í fríinu sínu, sennilega fram að hádegi. Hann varð nú
ekkert alltof kátur þegar ég sagði honum að það væri algjörlega bannað að eyða
fríinu sínu sofandi, stelpurnar fái ekki einu sinni að sofa út á meðan þær eru
hérna hjá okkur.
Annars gengur honum bara mjög vel í skólanum og er orðinn rosalega duglegur að lesa á ensku. Við reynum að halda honum við efnið með lestur á íslensku og gengur það alveg ágætlega.
3 ummæli:
Flott hugmynd þetta með stafsetninguna, er að hugsa um að taka hana upp hjá mér! Eru ekki fleiri svona einfaldar hugmyndir úr skólanum hans??
kv.
Sigga kennari
Börnin stækka mest þegar þau sofa.
Kveðja Jóhanna hjúkka
Haha, ég kannast við þetta, manstu að ég var í stökustu vandræðum þegar Halli var að læra hugtök úr stærðfræði og hagfræði og ég þurfti að leita til Villa og Tinnu? -Þetta skilar sér hins vegar í miklum orðaforða á skömmum tíma.
Kveðjur frá skerinu,
Erla
Skrifa ummæli