Það er sko meira en að segja það að fylla bílinn af
eldsneyti í Malawi. Undanfarna mánuði hefur verið mikill skortur á bæði bensíni
og olíu í landinu og ég hef margheyrt af fólki sem bíður, upp á von og óvon, í
marga klukkutíma á einhverri bensínstöðinni. Það verður að segjast að ég hef
verið nokkuð heppin hvað þetta varðar. Einu sinni gat ég rennt upp að
bensíndælu og gellan átti fullt af bensíni fyrir mig. Svo höfum við bara alltaf
átt 20 ltr á brúsa og um leið og brúsinn hefur tæmst höfum við farið á stúfana.
En nú brá svo við í síðustu viku að bíllinn var á síðustu
dropunum og bensínbrúsinn galtómur. Ég var orðin verulega áhyggjufull yfir því
hreinlega að lokast inni á heimilinu þannig að Villi tók bílinn á föstudaginn
og henti honum í biðröð á einhverri bensínstöðinni. En það kom ekkert bensín
svo hann kom heim með bílinn aftur, með enn færri dropum en um morguninn ;-)
Á laugardaginn vorum við búin að bjóða fólki heim í
grillveislu seinni partinn og við vorum á fullu í undirbúningi þegar Villi fær
símtal um að ef við viljum bensín þá verðum við að mæta NÚNA. Villi var að versla og hringdi í mig og ég þýt af stað að sækja hann og við brunum á
bensínstöðina. Þannig var þá mál með vexti að maður einn hafði verið með bílinn
sinn (sem notar olíu) í biðröð í marga klukkutíma og svo þegar bensín-tankbíll var
kominn á stöðina og röðin aðeins farin að hreyfast þá hringdi hann í
Villa. Hann var sem sagt að passa pláss í röðinni fyrir minn bíl og þegar ég
kem að þá segir hann mér að fara inn í röðina fyrir framan sig og hann muni
fara úr röðinni um leið og ég sé komin inn. Það þarf að passa þetta vel því
annars koma aðrir bílar og troða sér inn. Ég geri sem mér er sagt og smelli mér
inn í röðina fyrir framan. Þess má geta að akkúrat þar sem ég treð mér inn í
röðina erum við í miðju hringtorgi. Það gerði þetta aðeins erfiðara vegna
umferðar en ég er á litlum og nettum bíl og smeygði mér bara inn. Koma þá að
nokkrir gaurar alveg brjálaðir og hundskamma mig fyrir að troða mér inn í
röðina. Gaurinn sem var að passa stæðið fyrir mig komst ekki út því það var
bíll við bíl því leit þetta út eins ég hefði bara troðið mér inn. Enda héldu
mennirnir það og veifuðu höndum og hundskömmuðu mig. Ég varð alveg miður mín og
gat ekki útskýrt málið vegna tungumálaörðugleika, þeir skömmuðust bara á sínu
tungumáli og ég kann það ekki. Svo loks náði gaurinn “minn” að útskýra hvað
væri í gangi, ég væri ekkert að troða mér inn heldur hefði hann verið að passa
stæði fyrir mig en hann kæmist ekki út.
Við þessar útskýringar róuðust nú mennirnir heldur betur og
fóru að útskýra fyrir mér að ég yrði að fara út úr stæðinu og fara einn hring
um hringtorgið svo hinn bílinn kæmist út. Ég hélt nú ekki því þá myndi ég missa
plássið mitt og ég færi sko ekki aftast í röðina. En nei nei, þeir lofuðu að
passa plássið mitt sem þeir og gerðu.
Eins ég sagði þá var þetta í miðju hringtorgi og það var
nokkur umferð enda hádegi og margir á ferli. Ég átti eitthvað erfitt með að
komast út og af stað þannig að ég bara ákvað að leggjast á flautuna og leggja
af stað. Flautan átti að vara hina bílstjórana við að ég væri á ferð – þetta
virkaði alveg þrælfínt og frúin bara keyrir af stað án þess að líta of mikið í
kringum sig því annars hefði ég aldrei komist af stað. Svona er nú að keyra í
Lilongwe.
En sagan er nú ekki búin. Röðin hreyfist hægt og rólega og
voru tvær raðir, önnur fyrir bíla og hin fyrir fólk með brúsa. Ég reyndi að
passa mig að færa minn bíl alltaf þegar bílinn á undan fór nær. En eftir
einhverja stund kemur sá bílstjóri (og þessi fyrir aftan mig kom líka) til mín
og segir mér að ég verði að vera nær sér “það verði að vera stuðari við
stuðara” annars koma leigubílstjórarnir og troða sér inn á milli. Ég passaði
mig enn betur og færði mig eins nálægt og ég þorði.
Það einfalda atvik að láta fylla bílinn tók alveg þokkalega
á taugarnar í frúnni og þykist ég viss um að blóðþrýstingurinn hafi aðeins
risið við þessi læti. Eftir tæpa tvo tíma kemst bílinn minn loks að dælunni og
ég gat látið fylla hann og svo brunað heim.
Eins og þið getið ímyndað ykkur þá hitnar oft í kolunum
þegar fólk er búið að bíða í biðröð í marga klukkutíma. Enda voru þarna
vopnaðir hermenn sem reyndu að hafa hemil á mannskapnum.
Það fór heldur lengri tími í þetta bensínstúss en við áttum
von á og því varð undirbúningur fyrir grillveisluna kannski ekki eins mikill
eins og til stóð – en veislan tókst samt meiri háttar vel og var skemmtileg J
Þó bíllinn sé fullur af bensíni þá vill nú samt þannig til
að hann hefur staðið hér fyrir utan óhreyfður síðan á laugardag.
1 ummæli:
Sérstök menning, annað verður ekki sagt
Skrifa ummæli